Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
   þri 07. apríl 2026 14:02
Kári Snorrason
Fer yfir leikinn sögulega - „Veit ekki hvað Jói Kalli hefði gert væri hann þarna“
Völlurinn var snæviþakinn.
Völlurinn var snæviþakinn.
Mynd: Samsett
Völlurinn var snæviþakinn.
Völlurinn var snæviþakinn.
Mynd: Livey/Skjáskot
„Gunnar Oddur er ekki bara góður plötusnúður heldur líka góður dómari.“
„Gunnar Oddur er ekki bara góður plötusnúður heldur líka góður dómari.“
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir tryggði sér áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins á fimmtudag. Leikurinn fer í sögubækurnar að því leytinu til að leikurinn fór fram í tveimur mismunandi bæjarfélögum.

Í Bikarmörkum RÚV í gærdag kom fram að það hafi einu sinni gerst áður en var það í viðureign FHL og Hamars árið 2020.

Leikurinn hófst klukkan 14:00 á tekk-vellinum í Árbæ en eftir rúmlega 20 mínútna leik stöðvaði Gunnar Oddur Hafliðason, dómari leiksins, leikinn vegna veðurs. Völlurinn var snæviþakinn og ekki hægt að sjá línurnar á vellinum.

Ákveðið var að spila síðustu 70 mínútur leiksins eða svo í Skessunni í Hafnarfirði, öðru bæjarfélagi, og hófst leikurinn aftur um klukkutíma eftir að hann var stöðvaður í Árbænum.

Fótbolti.net ræddi við Eyþór Wöhler, leikmann Fylkis, um leikinn skrautlega.

Lestu um leikinn: Fylkir 2 -  0 KFA

„Það fór að kyngja snjó eftir að leikurinn byrjaði. Á tuttugustu mínútu var ekki hægt að spila leikinn. Ég veit ekki hvað Jói Kalli hefði gert hefði hann verið þarna. Þá bara ákvað Gunnar Oddur að taka málin í sínar hendur og stoppa leikinn. Sem var alveg rétt, það var ekki fræðilegur að spila þarna og stórhættulegt.

Þetta var eins og að vera á svellinu í Egilshöll. Menn voru að fleygja sér í tæklingar, detta og svona. Það var flott að koma í veg fyrir meiðsli. Þetta hefur gerst einu sinni, tvisvar áður. Ég hef gaman að þessu. Ég vil að við gerum meira af þessu; byrja leikinn í Árbæ og fara í Hafnarfjörðinn. Gunnar Oddur er ekki bara góður plötusnúður heldur líka góður dómari og les leikinn vel. Það ber að hrósa honum líka.“


Íhugaði að kaupa Red Bull
„Ég var að dekra við það að fara inn í Krónuna og kaupa mér Red Bull. Ég veit ekki alveg hvað Heimir Guðjóns hefði sagt hefði ég gert það. Nei nei, við blöstuðum tónlist og keyrðum strax inn í Hafnarfjörð og byrjuðum að hita upp. Versta við þetta var að maður þurfti að hita upp tvisvar. Það var ekki gaman.“

Veðurguðirnir ekki með Fylki í liði
FH gekk af velli í Lengjubikarnum í leik gegn Fylki vegna snjókomu.

„Það þarf að hringja þarna upp eftir í veðurguðina og græja þetta. Vonandi er þessu lokið. Eða að við þurfum að fara byggja höll í Árbæ. Maður er orðinn langþreyttur á einhverjum snjó, það er kominn apríl andskotinn hafi það.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner