Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 07. maí 2022 17:18
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Laglegt fyrsta mark Caicedo
Moises Caicedo fagnar markinu gegn United
Moises Caicedo fagnar markinu gegn United
Mynd: Getty Images
Moises Caicedo, tvítugur miðjumaður Brighton, er búinn að taka forystuna fyrir liðið gegn Manchester United á AMEX-leikvanginum.

Caicedo, sem kemur frá Ekvador, var keyptur til Brighton á síðasta ári en var lánaður til Beerschot í Belgíu fyrri hluta tímabilsins.

Hann snéri aftur í janúar og skoraði svo fyrsta mark sitt í dag gegn United.

Markið var afar fallegt. Boltinn barst til hans um 25 metrum fyrir utan teig og lét hann vaða meðfram grasinu og á nærstöngina en David De Gea kom engum vörnum við.

Markið má sjá hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hjá Caicedo
Athugasemdir
banner
banner
banner