Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 07. júní 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Margrét Íris skrifar undir hjá ÍBV (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Margrét Íris Einarsdóttir verður áfram hjá ÍBV næstu tvö árin eftir að hafa skrifað undir samning við félagið í vikunni.

Margrét Íris er fædd 1999 og hefur í heildina spilað 23 leiki fyrir meistaraflokk ÍBV, þar af spilaði hún átta leiki í Pepsi Max-deildinni í fyrra.

Margrét hefur spilað lítið undanfarin ár vegna meiðsla. Hún virðist vera búin að jafna sig og er hægt að búast við að hún spili stærra hlutverk í ár.

ÍBV náði í átján stig síðasta sumar og endaði fimm stigum fyrir ofan fallsæti. Samkeppnin verður enn harðari í ár og áhugavert að sjá hvernig Eyjastúlkum mun ganga.
Athugasemdir
banner
banner
banner