Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 07. júní 2022 23:12
Ívan Guðjón Baldursson
Camavinga líkaði við færslu Romano um Tchouameni
Mynd: Getty Images

Franski miðjumaðurinn Aurelien Tchouameni er svo gott sem genginn til liðs við Real Madrid. Fabrizio Romano staðfesti þetta fyrir skömmu þar sem hann birti mynd af ungstirninu í treyju Real Madrid með yfirskriftinni 'here we go'.


Tchouameni hefur verið eftirsóttur af stærstu félögum Evrópu en vildi einungis fara til Real Madrid, sem borgar um 100 milljónir evra fyrir leikmanninn.

Hjá Real mun Tchouameni berjast við bestu miðjumenn heims um byrjunarliðssæti en Luka Modric, Toni Kroos og Casemiro eiga ekki mikið eftir. Tchouameni er því partur af kynslóðaskiptum Real Madrid, ásamt samlanda sínum Eduardo Camavinga.

Camavinga er mjög ánægður með að fá landsliðsfélaga sinn yfir til Madrídar og líkaði við 'here we go' færslu Romano í dag.


Athugasemdir
banner
banner
banner