Tölvuleikjaframleiðandinn EA Sports hefur spáð því að Spánn verði heimsmeistari í sumar, en það gæti farið um stuðningsmenn margra þjóða enda hefur fyrirtækið spáð fyrir um réttan sigurvegara fjögur mót í röð.
EA spáði Spánverjum heimsmeistaratitlinum árið 2010 og Þjóðverjum fjórum árum síðar.
Það fór nákvæmlega eins og þeir í EA höfðu búist við. Þeir sögðu einnig að Frakkland myndi vinna HM í Rússlandi árið 2018 og að Lionel Messi og félagar í Argentínu myndu taka titilinn í Katar fyrir fjórum árum.
Spáin frá EA fyrir komandi mót var birt í gær, en þar er Spánverjum spáð titlinum.
Spánn er ríkjandi Evrópumeistari og er með líklegustu þjóðunum til þess að vinna HM.
Þetta er svo sem ekkert rosalega óvænt spá. Veðbankar segja Spánverja líklegasta ásamt Frökkum en á EpicBet er stuðullinn á Frakkland og Spán 6,10. Englendingar koma næstir með 8,65 og síðan Argentína og Portúgal með 10,50.
We've predicted four in a row. Now we've run the sim again.
— EA SPORTS FC (@EASPORTSFC) June 6, 2026
The next champion? ???????? pic.twitter.com/aNRQYVB1v1
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!




