Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
banner
   sun 07. júní 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Vináttulandsleikir í dag - Marokkó spilar við Noreg
Erling Braut Haaland og félagar mæta Marokkó
Erling Braut Haaland og félagar mæta Marokkó
Mynd: EPA
HM-þjóðirnar halda áfram að undirbúa sig af kappi fyrir mótið, en sex vináttulandsleikir eru á dagskrá í dag.

Danmörk og Úkraína mætast klukkan 16:30 áður en Króatía tekur á móti Slóveníu klukkan 18:45.

Áhugaverður leikur fer fram á Krít þar sem Grikkland og Ítalía mætast. Grikkir hafa gagnrýnt Ítali og segja þá hafa sýnt sér vanvirðingu með því að mæta til leiks með ungt og óreynt landslið. Hvorug þjóðin mun spila á HM í sumar.

Marokkó og Noregur mætast á sama tíma áður en Ekvador spilar við Gvatemala. Kólumbía spilar svo við Jórdaníu klukkan 23:00.

Leikir dagsins:
16:30 Danmörk - Úkraína
18:45 Króatía - Slóvenía
19:00 Grikkland - Ítalía
19:00 Marokkó - Noregur
20:00 Ekvador - Guatemala
23:00 Kólumbía - Jordan
Slapp
banner
banner