Fotbolti.net
07.07.20 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Hughton vill taka við Bristol City

Chris Hughton.

Chris Hughton.

Canon

Mynd: Getty Images

Chris Hughton hefur áhuga á að taka við sem stjóri Bristol City í Championship deildinni.

Lee Johnson var rekinn frá Bristol um helgina en hann hefur stýrt liðinu undanfarin ár.

Hughton er fyrrum stjóri Newcastle og Brighton en hann var rekinn frá síðarnefnda liðinu fyrir 14 mánuðum.
Hughton hefur hafnað fimm félögum í Championship deildinni síðan þá en hann er sagður spenntur fyrir starfinu hjá Bristol.

Mick McCarthy, sem hætti sem landsliðsþjálfari Íra í síðustu viku, er einnig sagður á óskalista Bristol.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.