Fotbolti.net
07.07.23 - 19:22
Brynjar Ingi Erluson

Bjarni Guðjóns á Möltu - „Ekki í vafa um það að við getum náð í úrslit“

Auglýsing
Bjarni Guðjónsson

Bjarni Guðjónsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Icelandair
Bjarni Guðjónsson, framkvæmdastjóri KR, er í stúkunni á Möltu að fylgjast með U19 ára landsliði karla á Evrópumótinu en hann er vongóður um að liðið geti náð í góð úrslit í kvöld.
Lestu um leikinn: Ísland U19 1 - 1 Noregur U19
Jóhannes Kristinn, sonur Bjarna, er í U19 ára landsliðinu og því fór Bjarni út til að fylgjast með mótinu.

Hann segir þetta frábært tækifæri fyrir leikmenn til að næla sér í reynslu sem vonandi mun skila betri framtíð fyrir íslenska boltann.

„Mjög vel. Við vorum í smá brasi í síðasta leik á móti Spánverjum sem eru vissulega með mjög gott lið en á endanum mjög fín úrslit sem liðið náði í. Þó leikurinn hafi tapast 2-1, þá eftiráhyggja gefum við annað markið en 1-1 hefðu verið frábær úrslit á lokamóti.“

„Ekki nokkur spurning. Það er reyndar þannig að liðið í fyrstu leikjunum nálgast þau yfirleitt af varfærni og þegar þú ert búinn að vinna fyrsta leikinn er fargi af þér létt en risaleikur fyrir okkur og allt undir. Við þurfum að ná í úrslit.“

„Flottur hópur og gott lið sem við erum með. Það er í góðri handleiðslu hjá Óla og strákunum þannig ég er ekki í vafa um það að við getum náð í góð úrslit.“


Bjarni fór sjálfur að fylgjast með U21 árs landsliði karla á EM í Danmörku fyrir tólf árum en hann segir athyglinin nú hafa færst neðar. Sonur hans hefur ekki enn fengið mínútur en hann segir að hans tími muni koma seinna.

„Það eru forréttindi að fá að fylgjast með svona mótum og ótrúlegt að við eigum lið á svona lokamóti. Þó hann hafi ekki fengið að spila enn þá þá kemur hans tími seinna.“

„Þetta er afrek og rosalega flott. Þetta gefur þessum strákum rosalega mikið. Að fá að fara inn í svona mót og spila þrjá leiki þar sem allir leikirnir skipta ofboðslega miklu máli. Það er pressa og það er einhverju við að búast frá þeim og þess vegna er þetta svona flott og gott í bankann fyrir drengina að fá að taka þátt í svona og hjálpar þeim að vera betri fyrir framtíðina hjá okkur.“

„Ég fékk að fara til Danmerkur og fylgjast með því liði, sem var held ég fyrsta lokamótið sem við komumst á sem var frábær reynsla fyrir þá. Það má segja sem svo að U21 árs landsliðið á þeim tíma, athyglin og væntingarnar, sem það fékk á þeim tíma hefur nú færst neðar og einmitt á þetta U19 ára lið sem við sjáum núna. Ég veit á síðasta leik sem við spiluðum við þessar aðstæður sem voru þá voru yfir hundrað 'scoutar' víðs vegar úr Evrópu að fylgjast með liðinu og hér eru allir að fylgjast með liðinu og vilja sjá hvað er að gerast.“


Bjarni segir að Eggert Aron Guðmundsson hafi staðið upp úr í tapinu gegn Spánverjum en njósnarar frá stærstu félögum heims fylgjast vel með á þessu móti og aldrei að vita nema einhverjir leikmenn verða keyptir eftir þetta mót.

„Já, svona heilt yfir var þetta liðsframmistaða. Eggert var mjög góður og helst standa upp úr leiknum síðast, en engin spurning og þeir vita hvað þeir eru að sjá. Þeir vita hvað íslensku strákarnir standa fyrir og hvað við stöndum fyrir sem fótboltaþjóð. Þeir vita alveg hvað þeir eru að horfa á þegar þeir mæta og sjá Ísland spila.“

Bjarni segir það notalegt að komast út í smá frí en samt geta fylgst með fótbolta. Hann spáir íslenskum sigri í kvöld en lokatölur verða 3-1 fyrir Íslandi.

„Meiriháttar og ágætis frí frá amstrinu heima að fá að koma út og vera að fylgjast með liðinu og vera í fótbolta, en fá samt að vera í fríi,“ sagði hann í lokin.

Staðan í leiknum er markalaust eftir tuttugu mínútur en Ísland má ekki tapa, annars er liðið úr leik.
Jóhannes Kristinn, sonur Bjarna, er í hópnum

Jóhannes Kristinn, sonur Bjarna, er í hópnum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Bjarni Guðjóns á Möltu - „Ekki í vafa um það að við getum náð í úrslit“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.