banner
   fös 07. ágúst 2020 09:10
Magnús Már Einarsson
Laugardalsvöllur sundur grafinn - Vökvunarkerfi á leiðinni
Frá Laugardalsvelli í gær.
Frá Laugardalsvelli í gær.
Mynd: KSÍ
Unnið er nú hörðum höndum að uppsetningu á vökvunarkerfi af fullkomnustu gerð í Laugardalsvelli. Kerfið er framleitt af Rainbird, sem er í hópi þriggja stærstu vökvunarkerfis-framleiðenda í heiminum. Búið er að grafa völlinn í sundur á nokkrum stöðum til að koma kerfinu upp.

Nýja kerfið mun gjörbreyta starfi Kristins Jóhannssonar vallarstjóra sem þá getur vökvað nákvæmlega eftir þörf grassins. Hingað til hefur það verið flóknara ferli að vökva fyrir leiki.

„Rakamælar í vellinum segja til um hve mikil gufun (hve mikið grasið "drekkur") og útgufun er á hverjum degi. Með þeim upplýsingum getur kerfið bætt við því sem þarf, sem kemur í veg fyrir of mikla eða litla vökvun. Með þessu myndast jafnari aðstæður á vellinum sem er mikilvægt fyrir öryggi leikmanna," segir á Facebook síðu KSÍ.

„Einnig verður hægt að bleyta í yfirborði vallarins rétt fyrir leik og í hálfleik með mun meiri nákvæmni. Bleytan lætur knöttinn skauta betur á yfirborðinu sem bíður mögulega upp á hraðari leik."

„Gert er ráð fyrir því að kerfið verði tilbúið fyrir 20. ágúst, sem er nægur tími til að gera völlinn sem glæsilegastan fyrir leik Íslands og Englands þann 5. september."



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner