Fotbolti.net
07.08.20 - 10:00
Magnús Már Einarsson

Manchester United til í að hlusta á tilboð í Lingard

Manchester United til í að hlusta á tilboð í Lingard
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United er tilbúið að hlusta á tilboð í Jesse Lingard í sumar en The Guardian segir frá þessu.

Lingard er uppalinn hjá Manchester United en þessi 27 ára gamli leikmaður gæti nú verið á förum.

Manchester United er að reyna að fá Jadon Sancho frá Borussia Dortmund auk þess sem Mason Greenwood hefur tekið fram úr Lingard í röðinni hjá United.
Lingard á ár eftir af samningi sínum við Manchester United en félagið er með klásúlu um að geta framlengt þann samning um eitt ár.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, er hins vegar sagður tilbúinn að hlusta á tilboð í Lingard í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.