Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 07. ágúst 2020 17:00
Magnús Már Einarsson
Richard Keogh til MK Dons (Staðfest)
Mynd: Getty Images
MK Dons, í ensku C-deildinni, hefur samið við írska varnarmanninn Richard Keogh.

Keogh var fyrirliði Derby í áraraðir áður en hann var rekinn frá félaginu síðastliðinn vetur.

Keogh meiddist illa á hné eftir bílferð með liðsfélögum sínum Mason Bennett og Tom Lawrence.

Bifreiðin keyrði á staur en Bennett og Lawrence voru báðir ákærðir fyrir ölvunarakstur eftir atvikið.

Keogh er 33 ára gamall írskur landsliðsmaður en hann þekkir til á Íslandi en hann var á láni hjá Víkingi R. frá Stoke árið 2004.
Athugasemdir
banner
banner
banner