fös 07. ágúst 2020 21:16
Aksentije Milisic
Sterling: Við vorum frábærir
Mynd: Getty Images
Raheem Sterling, leikmaður Manchester City, skoraði í kvöld þegar City slóg út Real Madrid í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

City vann einvígið samanlagt 4-2 og mætir liðið Lyon í 8-liða úrslitunum í næstu viku í Portúgal.

Sterling var ánægður með að vera kominn áfram og einnig með að skora sitt hundraðasta mark fyrir Manchester City.

„Orka og ástríða einkenndi okkur. Þetta er keppni sem við viljum komast langt í. Ef við spilum okkar leik og hlaupum mikið þá munu úrslitin fylgja."

„Við vitum hversu gott lið Real er. Við vitum hins vegar líka hversu góðir við erum og munurinn á liðunum var dugnaðurinn. Við vorum frábærir í kvöld."

„Við vildum pressa á þá og þannig skoruðum við tvö mörk. Ég er líka ánægður með að hafa skorað 100 mörk fyrir liðið, vonandi munu fleiri mörk fylgja," sagði Sterling.
Athugasemdir
banner
banner
banner