Fotbolti.net
07.09.20 - 23:44
Ívan Guðjón Baldursson

3. deild: KFG jafnaði Augnablik í þriðja sæti - Mikilvægur sigur Elliða

Jóhann Ólafur Jóhannsson gerði sigurmark KFG.

Jóhann Ólafur Jóhannsson gerði sigurmark KFG.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KFG og Elliði unnu leiki sína í 3. deildinni í kvöld. KFG hafði betur í mikilvægum leik gegn Augnablik og gerði svo gott sem út um drauma Kópavogsdrengjanna um að komast upp um deild.
Bæði lið fengu mikið af færum en Jóhann Ólafur Jóhannsson gerði eina mark leiksins á 57. mínútu.

Liðin eru jöfn í þriðja sæti eftir leikinn, sjö stigum frá Reyni Sandgerði sem situr í öðru sæti og er búinn að tapa þremur af síðustu fjórum deildarleikjum sínum.

Það eru enn átta umferðir eftir af deildartímabilinu en það verður erfitt að vinna upp sjö stig.

Elliði hafði betur gegn Ægi í neðri hlutanum. Elliði er með sautján stig, þremur stigum fyrir ofan fallsæti. Ægir er með sextán stig.

KFG 1 - 0 Augnablik
1-0 Jóhann Ólafur Jóhannsson ('57)

Elliði 1 - 0 Ægir
Úrslit af úrslit.net

Það tekur tíma fyrir stöðutöfluna að uppfærast.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.