Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 07. september 2020 18:19
Ívan Guðjón Baldursson
Sheffield kaupir tvo bakverði af Derby County (Staðfest)
 Sheffield er sagt greiða um 15 milljónir punda fyrir bakverðina.
Sheffield er sagt greiða um 15 milljónir punda fyrir bakverðina.
Mynd: Getty Images
Sheffield United er búið að staðfesta tvo nýja leikmenn sem koma til félagsins úr röðum Derby County.

Jayden Bogle er tvítugur hægri bakvörður sem á 90 leiki að baki á tveimur árum hjá Derby. Hann hefur spilað fjóra landsleiki fyrir U20 lið Englendinga.

Max Lowe er 23 ára og komst ekki í byrjunarliðið hjá Derby fyrr en á síðustu leiktíð. Lowe, sem á 24 yngri landsleiki fyrir England, getur einnig leikið á vinstri kanti.

Chris Wilder stjóri Sheffield vill auka samkeppnina í vængbakvarðarstöðunum hjá sér. George Baldock og Enda Stevens hafa leyst stöðurnar af hólmi hingað til án mikillar samkeppni.

Baldock og Stevens spiluðu hvern einasta úrvalsdeildarleik á síðustu leiktíð en ljóst er að þeir geta ekki gert það annað tímabil í röð.


Athugasemdir
banner
banner
banner