Fotbolti.net
07.09.23 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Damián van der Vaart kominn til Ajax (Staðfest)

Damián van der Vaart kominn til Ajax (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

17 ára gamall Damián van der Vaart er búinn að skrifa undir eins árs samning við Ajax, sem rennur út næsta sumar.

Hann mun spila með U18 liði Ajax og ef hann stendur sig vel mun hann geta barist við Kristian Nökkva Hlynsson um byrjunarliðssæti hjá Jong Ajax, varaliði Ajax sem leikur í hollensku B-deildinni.

Damian er sonur hollensku goðsagnarinnar Rafael van der Vaart sem lék meðal annars fyrir Real Madrid og Tottenham á ferli sínum sem atvinnumaður.

Það verður spennandi að fylgjast með uppgangi Damian sem er miðjumaður að upplagi, alveg eins og faðir sinn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.