Fotbolti.net
07.09.23 - 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Demarai Gray til Al-Ettifaq (Staðfest)

Demarai Gray.

Demarai Gray.

Canon

Mynd: EPA

Félagaskiptaglugginn í Sádi-Arabíu lokar í dag en lærisveinar Steven Gerrard í Al-Ettifaq hafa fengið ágætis liðsstyrk á gluggadeginum.
Félagið var að ganga frá kaupum á kantmanninum Demarai Gray frá Everton en það hefur legið í loftinu undanfarna daga.

Gray, sem er 27 ára gamall, var ósáttur hjá Everton en hann og stjóri liðsins, Sean Dyche, elduðu saman grátt silfur; þeir náðu ekki að tengja vel saman.

Það er talið að Al-Ettifaq borgi um 8 milljónir punda fyrir Gray sem hefur einnig leikið með Birmingham, Leicester og Bayer Leverkusen á sínum ferli.

Hann á þá að baki fimm A-landsleiki fyrir Jamaíku en Heimir Hallgrímsson er þjálfari liðsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.