Magnús Már og Enes framlengja við Aftureldingu (Staðfest)

Magnús Már Einarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magnús Már Einarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar í Lengjudeildinni og Enes Cogic aðstoðarþjálfari liðsins hafa framlengt samninga sína við félagið. Samningarnir gilda út tímabilið 2025.
Þeir eru að klára sitt fjórða tímabil hjá félaginu en liðið hefur tekið mikið stökk í ár og sitja í 2. sæti, þremur stigum á eftir toppliði ÍA þegar tvær umferðir eru eftir en liðið hefur verið á toppnum lengi í sumar.
Undanfarin þrjú ár hefur liðið endað í neðri hluta deildarinnar.
„Það er gríðarlegur heiður að þjálfa uppeldisfélagið og ég hlakka til að gera það áfram næstu árin. Trúin og liðsheildin í hópnum er stórkostleg og við erum staðráðnir í að klára núverandi tímabil af krafti og ná markmiðum okkar," sagði Magnús Már við Aftureldingu eftir að hafa skrifað undir nýja samninginn.
„Umgjörðin í kringum liðið er fyrsta flokks og stemningin á leikjum í Mosfellsbæ er mögnuð. Við erum gífurlega þakklátir fyrir að eiga frábæra stuðningsmenn og erum staðráðnir í að halda áfram að bæta liðið og taka skref fram á við næstu árin."
Afturelding mætir botnliði Ægis á heimavelli næstkomandi laugardag og lýkur deildarkeppninni með leik gegn Þrótti í Laugardalnum.
Maggi og Enes framlengja út 2025 ??@maggimar, þjálfari Aftureldingar, og Enes Cogic, aðstoðarþjálfari, hafa framlengt samninga sína út tímabilið 2??0??2??5??. Maggi og Enes eru að klára sitt fjórða tímabil en undir þeirra stjórn hefur Afturelding bætt árangur sinn undanfarin ár pic.twitter.com/Uo0lQBrdgM
— Afturelding (@umfafturelding) September 7, 2023





