Fotbolti.net
07.10.19 - 20:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Van Dijk: Jólatörnin og fleira eftir - Allt getur gerst

Van Dijk: Jólatörnin og fleira eftir - Allt getur gerst
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City tapaði óvænt, 0-2, á heimavelli gegn Wolves í gær. Tapið og það að Liverpool lagði Leicester, 2-1, á laugardag, þýðir að Liverpool er með átta stiga forskot að átta umferðum liðnum í ensku úrvalsdeildinni.

<b>Sjá Einnig:</b><a href="https://fotbolti.net/fullStory.php?id=286769" target="_blank">Neville: Liverpool getur ekki tapað titlinum</a>

Virgil van Dijk, miðvörður Liverpool, er ánægður með gengið hingað til en segir enn allt geta gerst í toppbaráttunni.
„Hingað til höfum við sótt stiginn," sagði van Dijk við Sky Sports.

„Það er samt alltaf pláss fyrir bætingar. Við eigum að einbeita okkur að framhaldinu og ekki horfa á forskotið sem við erum með á City og hin liðin."

„Það eru mörg próf eftir og fullt af leikjum. desember mánuður og janúar og allt getur enn gerst."

„Ég átti ekki von á þessu tapi hjá City en frammistaða Wolves var frábær og þeir eiga allt hrós skilið fyrir sína frammistöðu. City mun koma til baka. Núna set ég einbeitinguna á komandi landsleiki,"
sagði van Dijk að lokum.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Chelsea9+416
5Liverpool8+315
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd9-57
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.