Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 07. nóvember 2019 08:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Eins og að horfa á Beckham"
Mynd: Getty Images
Reece James varð á þriðjudaginn yngsti leikmaður í sögu Chelsea til að skora mark í Meistaradeildinni.

Joe Cole, fyrrum leikmaður Chelsea, var sérfræðingur hjá BT Sport á þriðjudagskvöldið. Cole fór ekki sparlega með lofið á hinum nítján ára James.

„Þegar ég var að spila í Ameríku (með Tampa Bay Rowdies) þá mætti ég með krökkunum (ungum leikmönnum Chelsea) á æfingu," sagði Cole á þriðjudagskvöldið.

„Við vorum á skotæfingu og skotin voru ekki upp á marga fiska, þá sá ég James og hann negldi allt á þessari æfingu. Skotin og fyrirgjafirnar, þetta var eins og að horfa á Beckham."

Leikur Ajax og Chelsea endaði með 4-4 jafntefli eftir að Ajax hafði komist 1-4 yfir á Stamford Bridge. Ajax fékk tvö rauð spjöld og Chelsea gekk á lagið.
Athugasemdir
banner
banner