Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 07. nóvember 2019 05:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Evrópudeildin í dag - Man Utd fær Partizan í heimsókn
Scott McTominay ræðir við Ole Gunnar Solskjær í fyrri leik United og Partizan.
Scott McTominay ræðir við Ole Gunnar Solskjær í fyrri leik United og Partizan.
Mynd: Getty Images
Hvað gera Raul Jimenez og hans samherjar gegn Slovan?
Hvað gera Raul Jimenez og hans samherjar gegn Slovan?
Mynd: Getty Images
23 leikir fara fram í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í kvöld. Tvö ensk félög eru þar á meðal, Manchester United fær Partizan í heimsókn og Slovan kemur frá Bratislava og heimsækir Úlfana.

Þrír leikir eru á sportrásum Stöð 2. Í fyrsta sjónvarpsleik dagsins heimsækir AZ lið Astana í Kasakstan. Albert Guðmundsson er fjarri góðu gamni hjá AZ og þá er Rúnar Már Sigurjónsson tæpur hjá Astana.

Lokasjónvarpsleikur dagsins fer fram í sama riðli, L-riðli, þegar United tekur á móti Partizan frá Belgrad. United er á toppi riðilsins en liðið hefur unnið tvo leiki og gert eitt jafntefli til þessa.

Annar sjónvarpsleikurinn er viðureign Lazio og Celtic í E-riðli. Fyrri viðureign liðanna var mjög spennandi og bjargaði Fraser Forster Skotunum með frábærri vörslu undir lok leiks eftir að Celtic hafði komið til baka úr stöðunni 0-1.

Krasnodar, þar sem Jón Guðni Fjóluson spilar, á leik á móti Trabzonspor og Arnór Ingvi Traustason og hans samherjar í Malmö heimsækja Lugano. Þá á CSKA, þar sem Hörður Björgvin Magnússon og Arnór Sigurðsson leika, útileik. Alla leiki dagsins má sjá hér að neðan.

Evrópudeildin - Fimmtudagur 7. nóvember
Riðill A
17:55 Dudelange - Sevilla
17:55 APOEL - Qarabag

Riðill B
17:55 Lugano - Malmo FF
17:55 FC Kobenhavn - Dynamo K.

Riðill C
17:55 Basel - Getafe
17:55 FK Krasnodar - Trabzonspor

Riðill D
17:55 Rosenborg - Sporting
17:55 LASK Linz - PSV

Riðill E
17:55 Lazio - Celtic (Stöð2Sport)
17:55 Cluj - Rennes

Riðill F
17:55 Standard - Eintracht Frankfurt

Riðill G
20:00 Feyenoord - Young Boys
20:00 Rangers - Porto

Riðill H
20:00 Espanyol - Ludogorets
20:00 Ferencvaros - CSKA

Riðill I
20:00 Wolfsburg - Gent
20:00 Oleksandria - Saint-Etienne

Riðill J
20:00 Gladbach - Roma
20:00 Wolfsberger AC - Istanbul Basaksehir

Riðill K
20:00 Braga - Besiktas
20:00 Wolves - Slovan

Riðill L
15:50 Astana - AZ (Stöð2Sport)
20:00 Man Utd - Partizan (Stöð2Sport)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner