Sammi: WhatsApp-ið mitt hefur ekki stoppað

Við viljum klárlega halda honum og teljum það mikilvægt fyrir félagið að halda þeim heimastrákum sem eru að koma upp.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Túfa verður 100% áfram.

Fimm leikmenn hjá Vestra eru að renna út á samningi ef horft er í skráða leikmannasamninga á heimasíðu KSÍ. Það eru Nacho Gil, Vladimir Tufegdzic, Ibrahima Balde, Guðmundur Arnar Svavarsson og Guðmundur Páll Einarsson.
Formaður Vestra, Samúel Samúelsson, er staddur í sólinni á eyjunni fögru en tók upp símann þegar Fótbolti.net hafði samband í dag.

Fyrst var Sammi spurður hvort hann væri eitthvað að vinna í leikmannamálum þó að hann sé ekki á landinu.
„Eiginlega ekki, en ég ætla ekki að reyna ljúga því að ég sé ekki búinn að tala við neinn mann. Davíð er líka í fríi, hann vill vita allt um leikmanninn áður en samið er við hann, vandar sig ótrúlega vel þegar hann sækir leikmenn. Það er því mjög lítið komið af stað," sagði formaðurinn og bætti við: „Við förum að skoða þetta eftir miðjan mánuðinn. WhatsApp-ið mitt hefur ekki stoppað, það eru mest megnis erlendir umboðsmenn. Við sjáum hvað er í boði heima áður en við förum að halda eitthvað áfram í þessu."
Túfa áfram en Balde líklega á förum
Næst var hann svo spurður út í samningslausu leikmennina.
„Túfa verður 100% áfram, það er búið að ganga frá því. Nacho er 50-50, hann tók fund með mér áður en hann fór. Hann ætlaði að láta þetta gott heita á Íslandi, hann var að vinna hjá Kerecis og væri til í að komast að hjá þeim í öðru landi."
„Ég hef ekkert rætt við Ibrahima Balde frá því hann fór. Það kæmi mér mjög á óvart ef hann yrði áfram."
Nicolaj Madsen hættur í fótbolta
Snemma á þessu ári kom í ljós að Nicolaj Madsen yrði ekki með Vestra á tímabilinu 2023. Er eitthvað samtal við Nicolaj um að hann gæti komið aftur til Íslands?
„Nei, við höfum ekkert rætt það. Ég hef heyrt reglulega í Nicolaj í sumar og hann er bara hættur í fótbolta. Hann ætlar sér að starfa í fótbolta og hefur mikinn áhuga á því að verða leikgreinandi og vinna í kringum það. Fótboltaferillinn er búinn segir hann."
Mikilvægt að halda heimastrákunum
En hvað með Guðmundana?
„Guðmundur Arnar er á samningi, en Guðmundur Páll er að renna út. Það kæmi mér mjög mikið á óvart ef Guðmundur Páll yrði ekki áfram fyrir vestan. Við viljum klárlega halda honum og teljum það mikilvægt fyrir félagið að halda þeim heimastrákum sem eru að koma upp. Hann tekur endanlega ákvörðun um það sjálfur, hann er mjög ungur ennþá (fæddur 2005) og spilaði kannski ekki mikið. Hann hefur allavega heilan vetur til að bæta úr því sjálfur og þá tökum við kannski frekar stöðuna hjá honum næsta vor," sagði Sammi að lokum.

TENGT EFNI
Framkvæmdum flýtt á Ísafirði - Vonar að gervigrasvellirnir verði klárir fyrir áramót

Túfa verður 100% áfram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð