Gylfi fær 7
Gylfi Þór Sigurðsson átti flottan leik er Everton lagði Chelsea að velli í fyrsta leik dagsins í enska boltanum.
Gylfi Þór bar fyrirliðaband Everton og fékk 7 í einkunn fyrir sinn þátt í 3-1 sigri. Enginn samherji hans fékk þó lægri einkunn, að undanskildum Leighton Baines sem kom inn af bekknum.
Dominic Calvert-Lewin var maður leiksins með 9 í einkunn. Hann skoraði tvennu og var líflegur í framlínunni. Richarlison og Djibril Sidibe voru einnig góðir og fengu 8.
N'Golo Kante, Mateo Kovacic og Mason Mount eru einu leikmenn gestanna sem þóttu góðir í liði gestanna. Flestir fengu 5 í einkunn, þar á meðal Christian Pulisic, Tammy Abraham og Kepa Arrizabalaga.
Everton: Pickford (7), Sidibe (8), Holgate (7), Keane (7), Digne (7), Schneiderlin (7), Sigurdsson (7), Walcott (7), Richarlison (8), Iwobi (7), Calvert-Lewin (9).
Varamenn: Davies (7), Baines (6)
Chelsea: Kepa (5), James (6), Christensen (5), Zouma (5), Azpilicueta (5), Kante (7), Kovacic (7), Willian (6), Mount (7), Pulisic (5), Abraham (5).
Varamenn: Hudson-Odoi (5)
Athugasemdir