07.12.24 - 22:03
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Real Madrid færist nær Barcelona - Mbappe kominn með ellefu mörk

Kylian Mbappe skoraði ellefta mark sitt með Real Madrid

Mynd: EPA

Girona 0 - 3 Real Madrid
0-1 Jude Bellingham ('36 )
0-2 Arda Guler ('55 )
0-3 Kylian Mbappe ('62 )
0-1 Jude Bellingham ('36 )
0-2 Arda Guler ('55 )
0-3 Kylian Mbappe ('62 )
Real Madrid tókst að saxa á forystu Barcelona í toppbaráttunni í La Liga á Spáni í kvöld.
Madrídingar unnu nokkuð þægilegan og öruggan 3-0 sigur á Girona.
Jude Bellingham varð fyrstur allra í deildinni til að skora fimm leiki í röð á þessu tímabili er hann þrumaði boltanum af krafti í markið úr miðjum teignum.
Snemma í síðari hálfleik klúðraði franski sóknarmaðurinn Kylian Mbappe algeru dauðafæri er hann stal boltanum á miðjunni, komst einn á móti marki en setti boltann framhjá. Markvörðurinn var þegar farinn í hitt hornið en samt tókst honum að klúðra færinu. Sem betur fer fyrir Mbappe hefði markið hvort er ekki staðið þar sem hann handlék boltann í aðdragandanum.
Tyrkneska undrabarnið Arda Güler bætti við öðru marki Madrídarliðsins á 55. mínútu áður en Mbappe skoraði ellefta mark sitt á tímabilinu.
Hann fékk boltann hægra megin á vellinum, hljóp inn í teiginn og skoraði úr þröngu færi. Þó hann sé ekki endilega upp á sitt besta á fyrsta tímabili sínu með Real Madrid er hann samt að ná að skora.
Í dag hjálpaði hann liði sínu að vinna góðan sigur og er Real Madrid nú með 36 stig, tveimur á eftir Barcelona.

La Liga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 11 | +34 | 30 |
| 2 | Atletico Madrid | 11 | +14 | 28 |
| 3 | Real Madrid | 11 | +18 | 27 |
| 4 | Betis | 11 | +3 | 23 |
| 5 | Real Sociedad | 11 | 0 | 19 |
| 6 | Sevilla | 11 | -2 | 17 |
| 7 | Athletic | 10 | +4 | 15 |
| 8 | Deportivo | 11 | +1 | 14 |
| 9 | Villarreal | 11 | 0 | 12 |
| 10 | Celta | 11 | 0 | 12 |
| 11 | Alaves | 11 | -2 | 12 |
| 12 | Vallecano | 10 | -5 | 12 |
| 13 | Getafe | 11 | -8 | 12 |
| 14 | Espanyol | 11 | -1 | 11 |
| 15 | Osasuna | 11 | -11 | 11 |
| 16 | Racing Santander | 11 | -14 | 11 |
| 17 | Elche | 11 | -4 | 10 |
| 18 | Levante | 11 | -5 | 10 |
| 19 | Valencia | 11 | -9 | 9 |
| 20 | Malaga | 11 | -13 | 5 |