Fotbolti.net
08.01.21 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Aguero byrjar hjá Man City á sunnudag

Sergio Aguero.

Sergio Aguero.

Canon

Mynd: Getty Images

Pep Guardiola, stjóri Manchester City, hefur staðfest að argentínski sóknarmaðurinn Sergio Aguero muni byrja í bikarleiknum gegn Birmingham City á sunnudag.

Aguero er markahæsti leikmaður í sögu City en hann hefur aðeins komið við sögu í fimm leikjum í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

Hann hefur komið af bekknum í lok síðustu tveggja leikja.
„Sergio er einstakur en hefur gengið í gegnum erfið meiðsli. En hnéð hefur virkað vel hjá honum síðustu vikur. Hann fær núna byrjunarliðsleik," segir Guardiola.

„Það verður frábært að fá Sergio til baka. Hann er jákvæður og vill koma til baka og skora mörk. Við þurfum á honum að halda."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.