Næstu þrír leikir ráða framtíð Amorim - Glasner, Southgate, Silva og Iraola orðaðir við Man Utd - Liverpool horfir til Araujo
   fös 08. janúar 2021 12:33
Magnús Már Einarsson
Kristall Máni semur við Víking R. (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur R. hefur gert þriggja ára samning við miðjumanninn Kristal Mána Ingason.

Kristall kemur til félagsins frá FCK í Danmörku, en hann lék með Víkingi á síðasta tímabili á lánssamningi og stóð sig vel.

Kristall er 19 ára gamall og hefur spilað 30 leiki fyrir yngri landslið Íslands.

„Um er að ræða gríðarlega efnilegan ungan miðjumann sem Víkingur hefur mikla trú á," segir í fréttatilkynningu frá Víkingi.

„Stjórn knattspyrnudeildar lýsir yfir ánægju sinni með að félagið haldi áfram að laða til sín unga, efnilega leikmenn sem styrkja félagið til framtíðar."


Athugasemdir