Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 08. janúar 2022 10:51
Brynjar Ingi Erluson
Saint-Maximin við Fabrizio Romano: Er Digne á leið til Newcastle?
Allan Saint-Maximin
Allan Saint-Maximin
Mynd: EPA
Allan Saint-Maximin, leikmaður Newcastle United, slær á létta strengi á Twitter í dag en þar spyr hann ítalska íþróttafréttamanninn, Fabrizio Romano, hvort Lucas Digne sé á leið til félagsins frá Everton.

Digne er á förum frá Everton í þessum glugga og hefur verið orðaður við bæði Chelsea og Newcastle United.

Fabrizio Romano er fremstur allra þegar það kemur að félagaskiptum leikmanna og hefur skrifað mikið um Digne en síðustu daga hefur hann ítrekað a Newcastle sé ekki lengur í baráttunni um franska vinstri bakvörðinn. Þetta endurtekur hann í flestum færslum um Digne.

Saint-Maximin hlær að þessu á Twitter og spyr Romano hvort Digne sé á leð til Newcastle eða ekki.

„Bara til að fá það á hreint Fabrizio en er Lucas Digne á leið til Newcastle?" sagði og spurði Saint-Maximin.


Athugasemdir
banner
banner
banner