Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 08. janúar 2023 13:40
Aksentije Milisic
Fyrrum framherji Arsenal og Celtic handtekinn með kókaín
Í leik með Celtic.
Í leik með Celtic.
Mynd: Getty Images

Anthony Stokes, fyrrverandi framherji Arsenal og Celtic í Skotlandi, var handtekinn á dögunum en hann reyndi að stinga af lögreglu sem elti bíl hans.

Stokes lék í tvö ár með Arsenal en þá spilaði hann einnig með Blackburn, Sheffield United, Crystal Palace og Sunderland svo eitthvað sé nefnt.


Stokes var með vini sínum þegar lögreglan náði þeim og fann kókaín í bílnum sem var að andvirði 4000 pund.

Stokes hefur reglulega verið í vandræðum en hann ákærður fyrir að áreita fyrrverandi kærustu sína í Skotlandi en hann mætti ekki í réttarhöld og var eftirlýstur þar í landi.

Stokes var handtekinn í Írlandi.


Athugasemdir
banner
banner