Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 08. janúar 2023 14:50
Aksentije Milisic
„Koma Casemiro jafn mikilvæg fyrir Man Utd og brotthvarf Ronaldo"
Mynd: EPA

Garth Crooks, sérfræðingur BBC, segir að það hafi verið gífurlega mikilvægt hjá Manchester United að fá Casemiro til liðsins.


Casemiro hefur verið frábær í liði Man Utd en það tók hann smá stund að komast í gang. Hann var mikið á bekknum til að byrja með en hefur svo nýtt tækifærið eftir að hann komst í byrjunarliðið.

Hann var einn af þremur sem var tilnefndur til leikmaður mánaðarins hjá Manchester United fyrir desember en Marcus Rashford vann þau verðlaun. Hinn sem var tilnefndur var Luke Shaw.

„Koma Casemiro hefur verið jafn mikilvæg fyrir Man Utd og brotthvarf Ronaldo var," sagði Crooks.

Cristiano Ronaldo yfirgaf félagið og hélt til Al Nassr í Sádí-Arabíu eins og allir vita en Crooks vill meina að hann hafi átt slæmt áhrif á Man Utd.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner