Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 08. janúar 2023 15:25
Aksentije Milisic
Shaw: Aldrei séð neinn elska sjálfan sig jafn mikið og Zlatan
Mynd: Getty Images

Zlatan Ibrahimovic, leikmaður AC Milan, er þekktur fyrir að vera með stórt egó en hann var leikmaður Manchester United frá 2016 til 2018.


Fyrra tímabilið hans var einkar gott og var Svíinn þá lykilmaður en á því síðara var hann mikið meiddur.

Luke Shaw talaði um Zlatan fyrir stuttu og hafði hann ekkert nema góðar sögur að segja af Zlatan þegar hann var hjá félaginu.

„Hann var frábær. Ekki bara í fótbolta, allir vissu hversu góður leikmaður hann var. Sem manneskja var hann magnaður. Þú gast séð afhverju hann hefur afrekað svona mikið, hann er fæddur sigurvegari," sagði Shaw.

„Utan vallar var hann ótrúlega fyndinn. Ég hef aldrei séð neinn mann elska sjálfan sig jafn mikið og hann gerði. Hann var alltaf klár með rök sem studdu það sem hann sagði. Við elskuðum hann."

í dag er Zlatan leikmaður AC Milan en undanfarið hefur hann verið mikið meiddur. Hann ætlar samt ekki að hætta strax segir hann.


Athugasemdir
banner
banner
banner