Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 08. febrúar 2023 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Búinn að fá nóg af Cucurella - Augljóslega ekki nægilega góður
Cucurella í leik með Chelsea.
Cucurella í leik með Chelsea.
Mynd: Getty Images
Chelsea keypti vinstri bakvörðinn Marc Cucurella frá Brighton síðasta sumar. Félagið endaði á því að borga 62 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Cucurella hefur byrjað 16 deildarleiki á þessu tímabili en hann hefur verið mjög svo slakur.

Ben Chilwell er núna mættur aftur meiðsli og Frank Leboeuf, fyrrum leikmaður Chelsea, vill sjá hann taka stöðu Cucurella í liðinu.

„Ég vil ekki sjá Cucurella lengur. Með fullri virðingu þá er hann ekki nægilega góður leikmaður fyrir Chelsea. Svo einfalt er það," segir Leboeuf.

„Það er klikkun að félagið hafi keypt hann á meira en 60 milljónir punda. Það er augljóst að hann er ekki nægilega góður."

Graham Potter, stjóri Chelsea, hefur komið Cucurella til varnar og segir að fjölskylduvandamál séu að hafa áhrif á leikmanninn.
Athugasemdir
banner