Dramatískt sigurmark í uppbótartíma kom U19 á EM (Staðfest)

U19 ára landsliðið spilar á EM í Belgíu í sumar

Mynd: KSÍ

U19 Svíþjóð 1 - 2 U19 Ísland
0-1 Snædís María Jörundsdóttir ('8 )
1-1 Matilda Nilden ('52 )
1-2 Sigríður Theodóra Guðmundsdóttir ('90 )

Íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum 19 ára og yngri er komið í lokakeppni Evrópumótsins eftir að hafa unnið dramatískan 2-1 sigur á Svíþjóð í annarri umferð í milliriðli í dag.
Stjörnukonan Snædís Mara Jörundsdóttir kom Íslandi í 1-0 á 8. mínútu leiksins en Svíar jöfnuðu snemma í síðari hálfleiks með marki frá Matildu Nilden.
Sigríður Theodóra Guðmundsdóttir kom inná sem varamaður á 89. mínútu leiksins og skoraði dramatískt sigurmark tæpum þremur mínútum síðar með skoti af löngu færi og skaut þannig íslenska liðinu í lokakeppni Evrópumótsins.
Ísland er í efsta sæti riðilsins með 6 stig, þremur á undan Svíum og Dönum. Ef liðin enda jöfn á stigum verður miðað við innanbyrðis viðureignir og þar hefur Ísland betur. Ísland mætir botnliði Úkraínu í lokaleik riðilsins á þriðjudag.
Glæsilegur árangur hjá stelpunum sem fara til Belgíu í sumar en lokakeppnin er haldin frá 18. - 30. júlí. Framtíðin er björt hjá Íslandi en U19 ára landsliðið tryggði sig einnig inn á EM á dögunum.