Fotbolti.net
08.04.23 - 20:14
Brynjar Ingi Erluson

Yevgen Galchuk í Aftureldingu (Staðfest)

Yevgen Galchuk og Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar

Yevgen Galchuk og Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar

Canon

Mynd: Afturelding

Lengjudeildin
Úkraínski markvörðurinn Yevgen Galchuk skrifaði í dag undir samning við Lengjudeildarlið Aftureldingar og mun hann spila með liðinu út tímabilið.
Galchuk er 31 árs gamall og kemur með gríðarlega reynslu inn í hópinn.

Markvörðurinn á 108 leiki í efstu deild í Úkraínu með Mariupol og Ingulets. Þá hefur hann spilað fjóra leiki með U21 árs landsliði Úkraínu.

Galchuk var síðast á mála hjá Mariupol en félagið var lagt niður á síðasta ári eftir innrás Rússa inn í Úkraínu.

Hann hefur verið án félags síðan en hefur ákveðið að taka slaginn með Aftureldingu í Lengjudeildinni í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.