Man Utd gæti gert tilboð í Hjulmand - Tottenham ætlar að fá Eze - Fulham sýnir Höjlund áhuga
sunnudagur 17. ágúst
Besta-deild karla
Lengjudeild karla
fimmtudagur 14. ágúst
Besta-deild kvenna
Forkeppni Evrópudeildarinnar
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
mánudagur 11. ágúst
Besta-deild karla
laugardagur 9. ágúst
Lengjudeild karla
Besta-deild kvenna
miðvikudagur 6. ágúst
Besta-deild karla
mánudagur 4. ágúst
Besta-deild kvenna
laugardagur 2. ágúst
miðvikudagur 30. júlí
Lengjudeild karla
Lengjudeild kvenna
Forkeppni Meistaradeildarinnar
Lengjudeild karla
mánudagur 28. júlí
Besta-deild karla
laugardagur 26. júlí
2. deild karla
Besta-deild karla
Lengjudeild karla
fimmtudagur 24. júlí
Besta-deild kvenna
Lengjudeild kvenna
Besta-deild kvenna
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Besta-deild kvenna
Lengjudeild kvenna
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
miðvikudagur 23. júlí
þriðjudagur 22. júlí
Forkeppni Meistaradeildarinnar
sunnudagur 20. júlí
Besta-deild karla
fimmtudagur 17. júlí
Besta-deild karla
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
föstudagur 15. ágúst
Úrvalsdeildin
Liverpool 4 - 2 Bournemouth
1 0 Hugo Ekitike ('37)
Milos Kerkez - Liverpool ('43, gult spjald)
2 0 Cody Gakpo ('49)
2 1 Antoine Semenyo ('64)
2 2 Antoine Semenyo ('76)
Evanilson - Bournemouth ('81, gult spjald)
3 2 Federico Chiesa ('88)
4 2 Mohamed Salah ('90)
Bikarkeppni
Gutersloh 0 - 5 Union Berlin
0 1 Robert Skov ('19)
Aleksandar Kandic - Gutersloh ('33, gult spjald)
0 2 Leopold Querfeld ('35)
0 3 Rani Khedira ('43)
Fynn Arkenberg - Gutersloh ('64, gult spjald)
Sandro Reyes - Gutersloh ('72, gult spjald)
0 4 Andrej Ilic ('78)
0 5 Woo-Yeong Jeong ('90)
Amine Adli - Leverkusen ('43, gult spjald)
Edmond Tapsoba - Leverkusen ('47, gult spjald)
Michael Kleinschrodt - Sonnenhof Grosaspach ('61, gult spjald)
Volkan Celiktas - Sonnenhof Grosaspach ('64, gult spjald)
Volkan Celiktas - Sonnenhof Grosaspach ('67, rautt spjald)
0 2 Arthur ('74)
Mert Tasdelen - Sonnenhof Grosaspach ('82, rautt spjald)
0 3 Christian Kofane ('84)
0 4 Alex Grimaldo ('87, víti)
Saarbrucken 1 - 3 Magdeburg
0 1 Martijn Kaars ('43)
0 2 Rayan Ghrieb ('45)
0 3 Rayan Ghrieb ('59)
1 3 Tim Civeja ('67)
Calogero Rizzuto - Saarbrucken ('69, gult spjald)
Dominik Reimann - Magdeburg ('81, gult spjald)
Arminia Bielefeld 1 - 0 Werder
Marco Friedl - Werder ('43, gult spjald)
Leonardo Bittencourt - Werder ('52, gult spjald)
Leonardo Bittencourt - Werder ('54, rautt spjald)
Benjamin Boakye - Arminia Bielefeld ('80, gult spjald)
Olivier Deman - Werder ('90, gult spjald)
1 0 Isaiah Young ('90)
WORLD: International Friendlies
Morocco U-20 0 - 0 Egypt U-20
Bikarkeppni
Empoli 4 - 1 Reggiana
0 1 ('13)
- Empoli ('38, gult spjald)
- Reggiana ('44, gult spjald)
- Empoli ('44, gult spjald)
1 1 ('64)
- Lecce ('45, rautt spjald)
2 0 ('90)
2 0 ('45)
3 0 ('54)
- Vicenza ('75, gult spjald)
Eliteserien
Stromsgodset 0 - 5 Bodö/Glimt
Jesper Taaje - Stromsgodset ('36, gult spjald)
0 2 Jens Hauge ('39)
Gustav Wikheim - Stromsgodset ('41, rautt spjald)
0 3 Fredrik Bjorkan ('45)
0 4 Kasper Hogh ('59)
0 5 Daniel Bassi ('84)
Toppserien - Women
0 2 ('49)
- Bodo-Glimt W ('59, gult spjald)
0 3 ('70)
0 4 ('78)
- Bodo-Glimt W ('90, gult spjald)
La Liga
Girona 1 - 3 Vallecano
0 1 Jorge De Frutos Sebastian ('18)
0 2 Alvaro Garcia ('20)
Paulo Gazzaniga - Girona ('43, rautt spjald)
0 3 Isi Palazon ('45, víti)
1 3 Joel Roca ('57)
Villarreal 2 - 0 Oviedo
0 0 Salomon Rondon ('14, Misnotað víti)
Alberto Reina - Oviedo ('18, gult spjald)
Alberto Reina - Oviedo ('27, rautt spjald)
1 0 Karl Etta Eyong ('29)
2 0 Pape Gueye ('36)
Elitettan - Women
Elfsborg W 3 - 1 Jitex W
Sunnana W 2 - 1 Team TG W
þri 08.apr 2025 11:00 Mynd: Sigurður Ingi Pálsson
Magazine image

Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 10. sæti

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Tindastóll muni enda í neðsta sæti Bestu deildar kvenna í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir röðuðu liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær tíu stig, annað sæti níu og svo koll af kolli niður í tíunda sæti sem gefur eitt stig. Tindastóll endar á botninum og fellur ef spáin rætist.

Marki fagnað á síðasta tímabili.
Marki fagnað á síðasta tímabili.
Mynd/Sigurður Ingi Pálsson
Halldór Jón Sigurðsson, Donni.
Halldór Jón Sigurðsson, Donni.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bryndís Rut Haraldsdóttir, fyrirliði Tindastóls.
Bryndís Rut Haraldsdóttir, fyrirliði Tindastóls.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elísa Bríet er gífurlega efnileg.
Elísa Bríet er gífurlega efnileg.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Makala Woods á að fylla í skarðið sem Jordyn Rhodes skilur eftir sig.
Makala Woods á að fylla í skarðið sem Jordyn Rhodes skilur eftir sig.
Mynd/University of Kentucky
Birgitta Rún er efnileg.
Birgitta Rún er efnileg.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nicola Hauk á að styrkja liðið.
Nicola Hauk á að styrkja liðið.
Mynd/Tindastóll
Laufey Harpa er öflugur leikmaður.
Laufey Harpa er öflugur leikmaður.
Mynd/Sigurður Ingi Pálsson
Hvað gerir Tindastóll í sumar?
Hvað gerir Tindastóll í sumar?
Mynd/Siggi Photography
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. Tindastóll, 16 stig

Um liðið: Stólarnir eru á leið inn í sitt þriðja tímabil í röð í Bestu deildinni sem er í raun afar merkilegt afrek fyrir félag frá eins fámennu bæjarfélagi. Það hefur myndast frábær liðsheild hjá Tindastóli síðustu árin og erlendu leikmennirnir sem hafa komið hafa staðið sig vel. Þetta hefur orðið ákveðin fjölskylda, þetta lið. Tindastóll komst fyrst upp 2020 og féll þá árið eftir, en liðið komst beint aftur upp og sýndi mikinn karakter með því. Stólarnir hafa svo haldið sér uppi síðustu tvö tímabil en er núna spáð neðsta sætinu fyrir sumarið og þar með falli. Liðið ætlar sér væntanlega að afsanna þá spá.

Þjálfarinn: Það var mikill fengur fyrir Tindastól að fá Halldór Jón Sigurðsson, betur þekktan sem Donna, aftur á Sauðárkrók. Hann kom liðinu aftur upp í fyrstu tilraun og hefur svo haldið því uppi síðastliðin tvö ár. Donni er mjög fær þjálfari sem veit hvað þarf að gera til að ná árangri í þessari deild. Hann gerði Þór/KA meðal annars að Íslandsmeisturum árið 2017 en hann var að þjálfa í Svíþjóð áður en hann sneri aftur á Krókinn.

Álit Magga
Magnús Haukur Harðarson, fyrrum þjálfari Fjölnis, er sérfræðingur Fótbolta.net í Bestu deild kvenna. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hræddur um að Tindastóll muni kveðja Bestu deildina
„Eftir flott tímabil í fyrra er ég hræddur um að Tindastóll kveðji Bestu deildina í haust."

„Jordyn Rhodes dró vagninn í markskorun og var liðið vel skipulagt frá markmanni til fremsta manns. Það mun mæða mikið á ungum leikmönnum liðsins og munu þær Elísa Bríet og Birgitta Rún spila mun stærra hlutverk í ár."

„Reynsla þjálfarans mun vega þungt í báráttunni sem framundan en í fyrsta skipti heyrði maður af neikvæðri umræðu í kringum umgjörðina hjá félaginu þar sem lykilleikmen höfðu ekki fengið greidd laun og á sama tíma beðnar um að taka á sig launalækkun.

„Þeir erlendu leikmenn sem komnar eru til félagsins þurfa að vera „svindl“ góðar svo að Tindastóll eigi möguleika á því að halda sér í deildinni. Leikir á undirbúningstímabilinu gefa merki um það að Tindastóll falli í ár og er ég hræddur um að allt það góða starf sem hefur verið unnið á Króknum síðustu ár muni enda illa og við sjáum liðið í frjálsu falli næstu ár."

„Ég skora á það góða fólk sem býr að á Sauðarkróki að mæta á völlinn og styðja sínar stelpur því að stemming kemur manni langt."

Lykilmenn: Bryndís Rut Haraldsdóttir og Makala Woods
Bryndís Rut er hjartað í liðinu og sú sem mun drífa þær áfram innan sem utan vallar. Er reynslumesti leikmaður liðsins og leiðtoginn sem mun skipta miklu máli ef þær lenda í vandræðum í sumar. Makala Woods er leikmaðurinn sem er fenginn til að leysa Jordyn Rhodes af hólmi og er það mikil ábyrgð. Makala kemur úr sama háskóla og Jordyn og eru miklar væntingar gerðar til hennar fyrir sumarið sem er framundan.

Gaman að fylgjast með: Elísa Bríet Björnsdóttir
Það hefði í raun verið hægt að setja hana sem lykilmann líka þrátt fyrir að hún sé fædd árið 2008. Var efnilegasti leikmaður Íslandsmótsins í fyrra en hún tók að sér gríðarlega mikilvægt hlutverk í liði Tindastóls og var frábær. Stólarnir eru heppnir að hún sé ein af fáum leikmönnum sem eru á samningi hjá félaginu því annars væru öll félög á Íslandi búin að reyna að krækja í hana. Birgitta Rún Finnbogadóttir, líka fædd 2008, er annar leikmaður sem á að fylgjast með í þessu liði.

Komnar:
Makala Woods frá Bandaríkjunum
Nicola Hauk frá Bandaríkjunum
Katherine Grace Pettet frá Bandaríkjunum
Amanda Lind Elmarsdóttir frá Einherja
Genevieve Crenshaw frá Bandaríkjunum

Farnar:
Monica Elisabeth Wilhelm til Svíþjóðar
Jordyn Rhodes til Vals
Krista Sól Nielsen í Grindavík/Njarðvík (var á láni hjá D/R)

Samningslausar:
María Dögg Jóhannesdóttir (2001)
Hugrún Pálsdóttir (1997)
Laufey Harpa Halldórsdóttir (2000)
Bryndís Rut Haraldsdóttir (1995)
Gabrielle Kristine Johnson (1999)
Annika Haanpaa (1998)
Saga Ísey Þorsteinsdóttir (2008)
Aldís María Jóhannsdóttir (2001)
Kristrún María Magnúsdóttir (1999)
Bergljót Ásta Pétursdóttir (2001)
Birna María Sigurðardóttir (2000)



Fyrstu fimm leikir Tindastóls:
16. apríl, Tindastóll - FHL (Sauðárkróksvöllur)
21. apríl, Þór/KA - Tindastóll (Boginn)
29. apríl, Tindastóll - Stjarnan (Sauðárkróksvöllur)
3. maí, Þróttur R. - Tindastóll (AVIS völlurinn)
8. maí, Tindastóll - Breiðablik (Sauðárkróksvöllur)

Spámennirnir: Alexandra Bía Sumarliðadóttir, Anton Freyr Jónsson, Brynjar Óli Ágústsson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Mist Rúnarsdóttir, Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke og Sölvi Haraldsson.
Athugasemdir