08.05.16 - 21:45
Matthías Freyr Matthíasson
Atli Viðar: Mig langar alltaf að spila
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
\"Já það er gaman að geta orðið að liði og ná að skora þetta mark í kvöld sem skildi á milli\", sagði Atli Viðar Björnsson hetja FH sem kom inn á og skoraði sigurmark liðsins á móti ÍA í kvöld. Þetta er annar leikurinn í röð þar sem Atli Viðar kemur inn á af bekknum og skorar. Aðspurður hvort ekki væri frústrerandi að fá ekki að byrja leikina svaraði Atli Viðar brosandi.
\"Jújú alveg helling en það er bara eins og það er og þá er að vera klár þegar kallið kemur.
Ég upplifiði það af hliðarlínunni að við ættum alltaf smávegis inni en vera með öll völd á leiknum þannig að ef við hefðum gefið aðeins meira af okkur og lagt aðeins meira á okkur að þá hefðum við átt að klára þetta 11 á móti 11.
Mig langar til að byrja alla leiki og spila eins oft og mögulega er. Það er ekkert öðruvísi með KR leiki eða aðra leiki. Mig langar alltaf að spila\"
Nánar er rætt við Atla Viðar í sjónvarpinu hér að ofan.