Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 08. júní 2021 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Foden með nýja greiðslu - Líkt við Gazza og Eminem
Phil Foden.
Phil Foden.
Mynd: Getty Images
Phil Foden, leikmaður enska landsliðsins, er kominn með nýja hárgreiðslu fyrir Evrópumótið.

Hárgreiðslan hefur vakið mikla athygli en Foden var spurður að því á blaðamannafundi í dag hvort hann hefði sótt innblástur til Paul Gascoigne, fyrrum landsliðsmanns Englands, eða rapparans Eminem.

„Ég hef verið með sömu hárgeiðslu í heila eilífð og ákvað að breyta til núna," sagði Foden við blaðamenn.

„Ég vaknaði í morgun og fólk var að líkja þessu við Gazza og Eminem. Þetta var eitthvað sem mér datt í hug en fólk breytti þessu í eitthvað annað."

Foden þykir skemmtilegt að vera líkt við Gazza sem var stórkostlegur fótboltamaður á sínum tíma.

Foden er aðeins 21 árs og einn efnilegasti fótboltamaður Englendinga.


Athugasemdir
banner
banner