Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 08. júní 2026 12:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tveir Stjörnumenn í banni á miðvikudag - Allir leikirnir í beinni
Jóhann Árni
Jóhann Árni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Margeirs
Viktor Margeirs
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þrír leikmenn taka út leikbann í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins; tveir Stjörnumenn og einn Bliki.

Afturelding tekur á móti Stjörnunni á miðvikudagskvöld og verður Stjarnan án þeirra Jóhanns Árna Gunnarsson og Daníels Finns Matthíassonar sem fengu sitt annað gula spjald í keppninni í sigrinum á KR í síðustu umferð.

Viktor Örn Margeirsson verður þá ekki með Breiðabliki gegn Ægi á föstudag þar sem hann fékk að líta rauða spjaldið gegn Þrótti Reykjavík í 16-liða úrslitunum.

Leikirnir í umferðinni verða í beinni á RÚV; einn leikur á aðalrás, einn á RÚV2 og leikir föstudagsins verða á ruv.is.

8-liða úrslitin
miðvikudagur 10. júní
19:30 Afturelding-Stjarnan (Malbikstöðin að Varmá) (sýnt á RÚV2)

föstudagur 12. júní
17:30 Ægir-Breiðablik (GeoSalmo völlurinn) (sýnt á ruv.is)
20:15 ÍA-Víkingur R. (ELKEM völlurinn) (sýnt á ruv.is)

laugardagur 13. júní
14:00 Fylkir-Grótta (tekk VÖLLURINN) (sýnt á RÚV)

Slapp
banner
banner
banner