Fotbolti.net
08.07.13 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Dias Felipe kominn til Parma (Staðfest)

Dias Felipe kominn til Parma (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski miðvörðurinn Dias Felipe er kominn til Parma frá Fiorentina og skrifaði þessi 29 ára gamli leikmaður undir fjögurra ára samning.

Fullt nafn Felipe er Felipe Dias Da Silva Dal Belo. Felipe kom til Fiorentina frá Udinese fyrir þremur árum en var lánaður út til Cesena og Siena.
Þetta kemur allt fram á vefsíðu Parma og hann mun byrja að æfa með sínu nýja félagi á mánudaginn.

Felipe hefur aldrei leikið með brasilíska landsliðinu en á yfir 200 leiki að baki í efstu deild á Ítalíu þar sem hann öðlaðist mestan part reynslunnar sem leikmaður Udinese.

Heimild: Football Italia

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.