08.07.13 - 13:54
Daníel Freyr Jónsson
Eric Abidal til Monaco (Staðfest)

Eric Abidal er genginn í raðir Monaco.

Mynd: Getty Images

Eric Abidal er genginn í raðir Monaco.

Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Eric Abidal er genginn í raðir Monaco á frjálsri sölu. Skrifaði hann undir eins árs samning hjá nýliðunum í efstu deild.
Abidal fór frá Barcelona fyrir skömmu þar sem samningur hans var runninn út, en hann hefur undanfarin ár lítið getað spilað vegna baráttu við krabbameins.
Þessi 33 ára gamli Frakki er hinsvegar gríðarlega öflugur þegar hann er heill heilsu, en hann hefur getað æft af krafti núna síðan í desember á síðasta ári. Náði hann meðal annars að snúa aftur á völlinn eftir 12 mánaða fjarrveru þegar hann lék með Barcelona í apríl.
Abidal þekkir vel til hjá Monaco þar sem hann steig sín fyrstu skref í atvinnumennskunni árið 2000. Hann lék þar í tvö ár áður en hann gekk í raðir Lille og síðar meir Lyon. Þaðan var hann keyptur til Barcelona árið 2007.
Það bætir því enn í hóp stórra nafna hjá Monaco, en þeir Rademl Falcao, James Rodrigues, Ricardo Carvalho, Jeremy Toulalan og Joao Moutinho hafa allir gengið í raðir félagsins í sumar.