Fotbolti.net
08.07.13 - 20:10
Magnús Már Einarsson

Eysteinn Húni hættur með Hött (Staðfest)

Eysteinn Húni hættur með Hött (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eysteinn Húni Hauksson er hættur sem þjálfari Hattar í 2. deild karla.

Þetta staðfesti Gunnlaugur Guðjónsson í stjórn Hattar í samtali við Fótbolta.net í kvöld.
Höttur er án sigurs á botni 2. deildar eftir tíu umferðir en liðið er með þrjú stig, sjö stigum frá öruggu sæti.

Eysteinn var á sínu þriðja tímabili sem þjálfari Hattar en liðið komst upp úr 2. deild undir hans stjórn árið 2011.

Í fyrra féll liðið síðan úr 1. deildinni eftir að hafa verið í fallbaráttu fram í lokaumferð.

Næsti leikur Hattar í 2. deildinni er gegn HK á Kópavogsvelli á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.