mán 08. júlí 2019 15:00
Magnús Már Einarsson
Erik Pieters til Burnley (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Burnley hefur krækt í vinstri bakvörðinn Erik Pieters frá Stoke en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

Piters er þrítugur Hollendingur en hann skrifaði undir tveggja ára samning við Burnley þar sem hann mun leika með íslenska landsliðsmanninum Jóhanni Berg Guðmundssyni.

Pieters kom til Stoke frá PSV Eindhoven árið 2013 en hann hefur ekki verið inni í myndinni hjá Nathan Jones stjóra liðsins.

Síðari hlutann á síðasta tímabili var Pieters í láni hjá Amiens í Frakklandi en hann er nú mættur í hörkuna hjá Burnley.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner