Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 08. júlí 2019 08:06
Magnús Már Einarsson
Marko Arnautovic til Shanghai SIPG (Staðfest)
Farinn í peningana í Kína.
Farinn í peningana í Kína.
Mynd: Getty Images
West Ham hefur selt framherjann Marko Arnautovic til Shanghai SIPG í Kína á 22,4 milljónir punda

Hinn þrítugi Arnautovic óskaði eftir að yfirgefa West Ham eftir að hann heyrði af áhuga Shanghai SIPG í síðustu viku.

Í janúar var Arnautovic nálægt því að fara til Kína en á endanum gerði hann nýjan samning við Hamrana.

Núna ákvað West Ham hins vegar að selja Arnautovic eftir að leikmaðurinn óskaði eftir því.

Bæði leikmenn West Ham og stjórinn Manuel Pellegrini vildu losna við Austurríkissmanninn eftir að hann óskaði eftir sölu.
Athugasemdir
banner
banner
banner