Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mið 08. júlí 2020 16:45
Magnús Már Einarsson
Daniel James mun ekki fara frá Man Utd á láni
Daniel James, kantmaður Manchester United, mun ekki fara frá liðinu á næsta tímabili til að fá meiri spiltíma. Þetta segir umboðsmaður hans Jonathan Barnett.

James kom til Manchester United frá Swansea síðastliðið sumar og hefur skorað fjögur mörk á tímabilinu auk þess að leggja upp sjö.

James skoraði síðast í mars en hann hefur verið fyrir aftan Mason Greenwood í baráttu um stöðu á kantinum að undanförnu.

Barnett segir hins vegar að hinn 22 ára gamli James ætli að berjast áfram fyrir sæti sínu.

„Hann er stór hluti af liði Man United. Ég sé hann spila áfram hjá Man United," sagði Barnett.
Athugasemdir
banner
banner