Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   fim 08. júlí 2021 15:30
Elvar Geir Magnússon
Munu allir Englendingar aflita á sér hárið?
Phil Foden.
Phil Foden.
Mynd: EPA
Hvernig tekur Harry Maguire sig út með aflitað hár?

Við gætum komist að því bráðlega en Phil Foden segir að allir leikmenn enska landsliðsins hafi samþykkt að láta aflita á sér hárið ef liðið nær að vinna EM alls staðar.

Enska liðið er komið í úrslitaleik EM þar sem liðið mun mæta Ítalíu á sunnudagskvöld.

Phil Foden hefur verið glókollur á mótinu en það hefur skapað samanburð við goðsögnina Paul Gascoigne.

„Ég sagði við liðið að ef við myndum vinna mótið þá þyrftu þeir að fá sér eins hárgreiðslu og ég. Þeir samþykktu það allir, ef við vinnum þetta þá verða allir með sömu greiðsluna," segir Foden.

Eftir árangur Englendinga hafa margir aðdáendur liðsins látið aflita á sér hárið. Dæmi er um að Íslendingur á miðjum aldri hafi jafnvel elt hárgreiðslu Phil Foden.
Athugasemdir
banner
banner