Fotbolti.net
08.07.23 - 10:16
Ísak Orri Leifsson Schjetne

Elmar Cogic: Balkanblóðið kickaði bara inn og ég setti tvö

Auglýsing
Elmar Cogic hefur verið á skotskónum nýlega, 8 mörk í 6 leikjum

Elmar Cogic hefur verið á skotskónum nýlega, 8 mörk í 6 leikjum

Canon

Mynd: Raggi Óla

Lengjudeildin

Elmar Cogic kíkti í viðtal eftir 1 - 4 sigur gegn Ægi á útivelli

Þegar spurður um úrslit leiksins:

“Við mættum með það markmið að vinna þennann leik, við erum á toppnum en Ægismenn búnir að vera flottir í seinustu leikjum, þeir spila gríðarlega vel! En þetta var svona “skyldusigur“ fyrir okkur, við erum á topppnum og eigum við að vinna svona leiki, það er klárt.“

Markalaus fyrri hálfleikur, 4 í seinni, hvað var að gerast í fyrri hálfleik?

“Mér fannst grasið soldið þurrt, maður þarf að venjast svona völlum til að byrja með, maður þarf að komast í takt við leikinn. Við vissum að við þyrftum að koma sterkari til leiks í seinni hálfleik, búnir að venjast grasinu og þá verður þetta alltaf betra! Og eins og gerðist áðan, við byrjuðum að raða þeim inn, eins og var lagt upp með.“

Þegar spurður um lykilinn á bakvið markaregnið í síðustu leikjum hjá honum

“Balkanblóðið kickaði bara inn og ég setti tvö, sem er bara flott, ég er búinn að vera að skora svolítið núna. Þakka strákunum kærlega fyrir, þeir eru búnir að vera leggja þvílikt upp á mig og búnir að spila frábærlega, ég dýrka strákana og þeir eru búnir að vera frábærir, þetta er þeim að þakka og ég er að reyna gera vel líka.“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.