Nonni Sveins: Sennilega skemmtilegra fyrir áhorfendur að horfa á mávana í fjöllunum
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Þórir Sveinsson, þjálfari Fram, var ekkert sérstaklega hrifinn af frammistöðu liðsins í 1-0 tapinu gegn ÍBV á Hásteinsvelli í dag.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 0 Fram
Framarar sköpuðu sér lítið og voru í raun heppnir að vera bara einu marki undir í hálfleik.
Í þeim síðari fór liðið að reyna fyrirgjafir inn í teiginn og finna föst leikatriði en það gekk lítið. Sigur ÍBV var því sanngjarn heilt yfir.
„Nei, veðrið var frábært og forréttindi að fá að spila á þessari fallegu Eyju og eitt fallegasta vallarstæði sem er í boði út um allan heim. Það hefði sennilega verið skemmtilegra fyrir áhorfendur að horfa á mávana í fjöllunum heldur en það sem var að gerast inni á vellinum því það var bara barátta og lítill fótbolti,“ sagði Nonni við Fótbolta.net.
Guðmundur Magnússon er með 6 mörk í deildinni á þessu tímabili en hafði úr litlu að moða í dag.
„Gummi var í mikilli baráttu, vann mörg einvígi og við hefðum kannski mátt vera duglegri í kringum hann. ÍBV fékk sérstaklega í fyrri hálfleiknum færi og við vorum heppnir að Óli hélt okkur inn í leiknum og að við skyldum ekki vera meira en marki undir í hálfleik.“
„Seinni hálfleikurinn var aðeins skárri. Við vorum aðeins duglegri í að koma boltanum inn í teig og skapa usla en fengum ekkert mikið af opnum færum. Þeir náðu að blokkera einhver færi og svo fyrirgjafir sem rétt sigldu framhjá sem menn náðu ekki að snerta. Við hefðum getað potað inn einu marki en heilt yfir þá lagði ÍBV meira í þennan leik og uppskáru eftir því. Þetta var bara skopp og barátta.“
Fram er í 10. sæti með 14 stig og er nú í harðri fallbaráttu.
„Það er örugglega ekkert langt í hann. Ég hef ekki hugmynd um hvernig taflan er og hef ekkert mikið verið að velta henni fyrir mér þannig séð. Þú þarft að skora mörk til að fá eitthvað út úr leiknum og við náðum því ekki í dag. Leikurinn bauð upp á einvígi, baráttu og menn náðu sjaldnar að ná að tengja saman 2-3 sendingar og ÍBV var bara sterkari en við í dag og við áttum alltaf undir högg að sækja allan leikinn,“ sagði hann í lokin.