Enski varnarmaðurinn Lucy Bronze hefur gengið til liðs við Manchester City á nýjan leik eftir þrjú ár hjá Lyon í Frakklandi.
Bronze vann Meistaradeildina með Lyon á dögunum en það var einn af fjölmörgum titlum sem hún vann hjá félaginu.
Hjá Lyon voru Bronze og Sara Björk Gunnarsdóttir liðsfélagar í skamman tíma.
Bronze vann Meistaradeildina með Lyon á dögunum en það var einn af fjölmörgum titlum sem hún vann hjá félaginu.
Hjá Lyon voru Bronze og Sara Björk Gunnarsdóttir liðsfélagar í skamman tíma.
Bronze, sem er lykilmaður í enska landsliðinu, skrifaði undir tveggja ára samning hjá Manchester City.
Manchester City hefur ekki orðið enskur meistari síðan 2016 en stefnir á stóra hluti á komandi tímabili.
Athugasemdir