Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 08. september 2022 10:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Brynjar Björn þjálfari mánaðarins í Svíþjóð
Brynjar Björn hér til vinstri.
Brynjar Björn hér til vinstri.
Mynd: Guðmundur Svansson
Brynjar Björn Gunnarsson er þjálfari mánaðarins í sænsku B-deildinni en þetta var tilkynnt núna í morgun.

Örgryte átti ansi góðan mánuð í ágúst, en þeir spiluðu fimm leiki og unnu þrjá þeirra. Hinir tveir leikirnir sem þeir spiluðu enduðu með jafntefli.

Örgryte er í 11. sæti sænsku B-deildarinnar og eru að berjast við falldrauginn.

Brynjar Björn tók við Örgryte í maí. Þetta hefur verið erfitt tímabil hjá Örgryte þar sem þeim var spáð góðu gengi fyrir mót.

Markmiðið hlýtur að vera að klára tímabilið með stæl og byggja svo ofan á það fyrir næstu leiktið.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner