Axel Tuanzebe semur við Ipswich (Staðfest)

Mynd: Ipswich Town

Mynd: Ipswich Town
Enski varnarmaðurinn Axel Tuanzebe gekk í dag í raðir Ipswich Town á frjálsri sölu.
Samningur Tuanzebe við Manchester United rann út í sumar og æfði hann meðal annars með Luton Town en samdi ekki við félagið.
Í dag gerði hann eins árs samning við Ipswich Town í ensku B-deildinni, með möguleika á að framlengja um annað ár.
Þar hittir hann fyrrum liðsfélaga sinn, Brandon Williams, sem er á láni frá Manchester United.
Kieran McKenna, sem var áður í þjálfaraliði United, er stjóri Ipswich Town.
Tuanzebe spilaði 37 leiki í öllum keppnum með United en hann er aðeins 25 ára gamall.

???? Our newest recruit is in the building. #itfc
— Ipswich Town (@IpswichTown) September 8, 2023