Coutinho til Katar (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brasilíski leikmaðurinn Philippe Coutinho er genginn í raðir Al-Duhail í Katar á láni frá Aston Villa.
Coutinho, sem er 31 árs gamall, kom aðeins við sögu í tveimur deildarleikjum með Villa á þessu tímabili þar sem hann spilaði samtals 24 mínútur.
Hann var ekki í plönum Unai Emery, stjóra félagsins, og ákvað því að leita annað.
Aston Villa staðfesti í dag að hann væri farinn frá félaginu á láni út tímabilið en hann er mættur til Al-Duhail í Katar.
Steven Gerrard fékk Coutinho til Aston Villa í janúar á síðasta ári á láni frá Barcelona og var síðan keyptur um sumarið.
Coutinho hefur áður spilað fyrir Liverpool, Inter, Bayern München, Espanyol og Vasco Da Gama.

Aston Villa can confirm Philippe Coutinho has completed a season-long loan move to Al Duhail.
— Aston Villa (@AVFCOfficial) September 8, 2023