Fotbolti.net
08.09.23 - 11:59
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Nicolas Pepe til Trabzonspor (Staðfest)

Nicolas Pepe.

Nicolas Pepe.

Canon

Mynd: Getty Images

Nicolas Pepe, sem var lengi vel dýrasti leikmaður í sögu Arsenal, hefur yfirgefið Lundúnafélagið.
Fílabeinsstrendingurinn er genginn í raðir Trabzonspor í Tyrklandi á frjálsri sölu. Það var útlit fyrir það fyrst að hann myndi fara til Besiktas en svo kom Trabzonspor inn í myndina og náði að krækja í framherjann.

Arsenal borgaði 72 milljónir punda til þess að fá Pepe frá Lille í Frakklandi sumarið 2019. Kaupin á Pepe eru ein mestu vonbrigðarkaup í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Pepe var ekki hluti af plönum Mikel Arteta, stjóra Arsenal, en hann var í leikmannahópnum í fyrstu fjórum deildarleikjum liðsins á tímabilinu.

Pepe var á láni hjá Nice í Frakklandi á síðustu leiktíð og skoraði þar átta mörk í 28 leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.